МАЙКЪЛ ДЖЕКСЪН * В НАМЕРЕНИЕТО СИ ДА ПУБЛИКУВАМ ВСИЧКО ЗА МАЙКЪЛ ДЖЕКСЪН, СЕ НАДЯВАМ ТУК ДА НАМЕРИТЕ СВОИТЕ ОТГОВОРИ ЗА НЕГОВИЯТ НАЧИН НА ЖИВОТ, ГЕНИЙ, ТАЛАНТ, НЕГОВИТЕ СЛАБОСТИ И СТРАСТИ, КАТО НОРМАЛНО ЧОВЕШКО СЪЩЕСТВО! ДА СЕ ОПИТАМЕ ДА СЕ ДОКОСНЕМ ДО ВСЕЛЕНАТА, НАРЕЧЕНА МАЙКЪЛ ДЖЕКСЪН!
Enciclopedia Jackson
Cada año se recuerda la maravilla de presentación de Michael Jackson en el Super Bowl. A día de hoy nadie supera tal presentación, ni teniendo la tecnología actual!
Michael Jackson our beautiful angel
#ParisJackson чрез IG
Парис Джаксън в чест на рождения ден на брат й Принс.
https://www.facebook.com/100009553838030/videos/286506996915888
Anna Mjöll ýtti limúsínu Michaels Jackson
Sumarhelgi nokkra 1993 var söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir gestur Michaels Jackson á búgarði hans Neverland. Einkabílstjóri Jackson sótti Önnu Mjöll heim til hennar í Los Angeles á hvítri limúsínu en á leiðinni á búgarðinn bilaði limmósínan. Ævintýrið er byrjað, lesendur góðir!
Það var vinur Önnu Mjallar, Eddie Barber að nafni, sem bauð henni með í heimsóknina til Neverland, búgarðs Jackson. Heimboðið var til komið af því að Barber komst í úrslit í keppni MTV-sjónvarpsstöðvarinnar um besta tónlistarmyndbandið við lagið Who It Is eftir Jackson.
„Þrír aðilar komust í úrslit og hver þeirra mátti taka með sér einn gest heim til poppgoðsins og eyða einni helgi hjá honum þegar úrsltin yrðu kynnt,“ sagði Anna Mjöll í viðtali sem birtist í DV þann 28. ágúst 1993.
Íslenskur víkingur ýtti limúsínu á hraðbrautinni
Anna Mjöll, þá 23 ára, þáði boð vinar síns, Eddie Barber, með þökkum en hún sagði síðar að hún hefði á þeim tímapunkti ekki gert sér grein fyrir hversu sérstakt heimboðið var í raun og veru.
„Og klukkan þrjú á föstudegi flautaði hvít limúsína fyrir utan húsið hjá mér. Það tekur þrjá og hálfan klukkutíma að keyra heim til Michaels Jacksons frá heimili mínu. Þegar við vorum búin að keyra í eina klukkustund bilaði limúsínan á hraðbrautinni og var alveg stopp.“
Hvað gerir maður þá? Í þessum sérstöku aðstæðum, aftur í limúsínu eins frægasta tónlistarmanns veraldar – á leiðinni heim til hans? Já, hvað gerir maður? Anna Mjöll þurfti ekki að hugsa sig lengi um heldur gekk beint í það sem gera þurfti.
„Víkingseðlið braust þá út í mér og ég rauk út til að ýta bílnum í gang. Karlmennirnir komu út á eftir og öll reyndum við að ýta. Þetta var eiginlega svolítið fyndin byrjun á ævintýralegri helgi. En bíllinn fór ekki í gang svo að panta varð aðra limúsínu.“
Þessi tiltekni bíll var kominn til uppboðshaldara í febrúar 2009, rétt eins og til stóð með allt bílasafn popparans á þeim tíma. Muni undirrituð þetta rétt þá átti Jackson í einhverju aurabasli og ætlaði að losa skotsilfur með því að selja allan bílaflotann.
Hins vegar hvarf hann skyndilega frá þeim áformum í apríl og ekkert varð af uppboðinu.
Fer ég nánar yfir bílaflotann síðar (jafnvel í dag) en þessi ljósmynd hér fyrir ofan fær að fylgja, því Jackson var nefnilega nokkuð fyrir limúsínur og átti fjórar slíkar þegar hann kvaddi.
Heimili popparans skoðað og hann fjarverandi
Til Neverland kom Anna Mjöll rétt fyrir kvöldmat á föstudeginum og í viðtalinu í DV lýsti hún hversu almennilegt starfsfólk Jackson hafi verið og tekið henni afar vel. Gestgjafinn sjálfur kom þó ekki fyrr en daginn eftir.
Að kvöldi föstudags fengu gestirnir að skoða íbúðarhús popparans sem var ævintýraheimur út af fyrir sig. Best er að Anna Mjöll „segi frá“ og vitna ég aftur í viðtalið:
„Mér fannst heimilið hans mjög hlýlegt og vinalegt. Enginn „glamúr" eins og maður hefði getað haldið. Þar er mikið af dökkum viði og mörg stór málverk af honum skreyta veggina. Eitt þeirra vakti sérstaka athygli mína. Það náði yfir heilan vegg og í miðjunni var Michael að lesa úr ævintýrabók fyrir fullt af börnum við kertaljós að kvöldi til úti í skógi. Í kring flögruðu ljósálfar og andlitin á þeim voru andlit vina Michaels, s.s. Elísabetar Taylor og Brooke Shields.
Í miðri stofunni er stórt líkan af skipinu úr „Captain Eo“. Við hliðina á því eru svo tvö borð þar sem eru myndaalbúm með myndum úr brúðkaupi Elísabetar Taylor og Larrys Fortenskys sem haldið var í garði Michaels [...]. Ég hélt að manni yrði fylgt um með öryggisvörðum en það var ekki,“ sagði söngkonan íslenska.
Vildu horfa á bíómynd í Neverland
Í hádeginu á laugardeginum hittu þau Jackson og MTV-liðið. Verðlaunaafhending vegna tónlistarmyndbandsins fór fram og dagurinn leið svo í sælu ævintýralandsins. Gestir skoðuðu dýragarð Jacksons og fleira fram að kvöldmat.
„Eftir matinn vildu vinningshafarnir fara í kvikmyndahúsið hans [Jackson] og sjá Cliffhanger með Sylvester Stallone. Ég gat ekki hugsað mér að setjast inn í bíósal og horfa á kvikmynd. Ég fór því ein að þvælast meðan hinir fimm fóru í bíó,“ sagði hún og þar með var Anna Mjöll ein á ferð í kvöldmyrkrinu í sjálfu Hvergilandi (Neverland).
Alein í hraðskreiðustu klessubílunum
„Það var komið myrkur svo ég fékk mér golfbíl og keyrði út í tívólíið. Þar voru tveir menn aö vinna og öll tækin í gangi. Ég fór alein í öll tækin. Starfsmennirnir spurðu hvað ég vildi prófa næst og löbbuðu með mig um allt svæðið. Það var mjög skrítið að vera alein í tívólíi þetta kvöld. Þarna eru t.d. hraðskreiðustu klessubílar sem ég hef á ævinni prófað.“
Rúntaði með Michael Jackson um Neverland í golfbíl
Eftir rallið í klessubílunum, þar sem hún var jú alein, fór Anna Mjöll inn í spilasal og lék billiard með krökkum sem þar voru. Skyndilega birtist Jackson sjálfur og gekk til Önnu Mjallar.
„Hann sagði: „Takk fyrir diskinn, hann er æðislegur, ég ætla að hlusta á hann aftur í kvöld.“ Ég gaf honum plötuna Jólaleg jól fyrr um daginn og hann var búinn að hlusta á hana.
Michael var að fara upp í golfbíl ásamt ungum bróðursyni sínum og bauð mér að koma með þeim í ökuferð. Þeir óku í dýragarðinn og Michael sýndi mér slöngur og tarantúlur.
Hann tók eina tarantúluna upp, risastóra og loðna kónguló, og spurði hvort ég vildi ekki prófa að halda á henni. Ég hefði aldrei þorað nema vegna þess að það var Michael Jackson sem bað mig. Síðan bað ég hann að koma og skoða uppáhalds lamadýrið mitt og hann var aldeilis til í það,“ sagði söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir um þessa ævintýraferð til Hvergilands.
Einkabílstjórinn og leiðsögumaðurinn Jackson
Þetta var sannarlega ævintýri sem bílar settu svip sinn á: Fyrst biluð limúsína sem okkar kona gerði heiðarlega víkingatilraun til að ýta í gang á hraðbrautinni, svo hraðskreiðustu klessubílar sem Anna Mjöll hafði prófað (og höfum í huga þá sérstöðu hennar að vera ein í „klessó“). Síðast en ekki síst ber að nefna bíltúr um flennistóra landareignina, á golfbíl, með leiðsögn og einkabílstjóra.
Einkabílstjóra að nafni Michael Jackson.
Viðtalið er mun lengra og má lesa það í heild inni á vefnum Tímarit.is eða með því að smella hér.
Fleira músíkalskt eða músíktengt:
John Lennon var afleitur bílstjóri
Alveg Gaga bílasafnari
Woodstock og umferðaröngþveitið mikla
Söngvari Metallica kemur á óvart!
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Катрин Майкълс
Michael Jackson Official Group
https://youtu.be/GGwWaVS7QPo?si=sxtEseTkSfGOKWHG Happy Birthday to Michael Jackson . Thank you for sharing your gift with the world and f...
-
Новият филм на Лиана Марабини, „Дар от Бога“, разказва за нейното възхищение към Св. Йоан Павел II Почти непознат аспект на Майкъл Джексън...
-
Some people are able to make something out of their life some aren't. People can be so different, some are hugely successful in whatev...